Hjá Maður lifandi er hollustan í fyrirrúmi. Við viljum gera hollustuvörur aðgengilegar fyrir alla með aðstoð, ráðgjöf og góðum upplýsingagrunni. Uppskriftirnar hér eru m.a. notaðar í matstofunni okkar þannig að hver og einn getur eldað uppáhalds réttina sína. Hægt er að leita eftir uppskriftum sem eru án sykurs, glútens, mjólkur, eggja, gers eða kolvetnasnauðar.
Unnið er að því að setja inn heilsusamlegar uppskriftir fyrir alla og hvetjum við þig til að fylgjast vel með þegar þær verða birtar.