Hafa sambandStækka leturMinnka letur

Örnámskeið í skapandi skrifum! - Þorvaldur Þorsteinsson

 

Örnámskeið í skapandi skrifum!
Með Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi
Borgartúni 24
þriðjudaginn 27. mars

kl 17:30 - 19.00

Einstakt tækifæri fyrir alla sem halda að þeir geti ekki skrifað – og alla hina líka...

Þorvaldur Þorsteinsson myndlistamaður og rithöfundur gefur okkur að þessu sinni kost á örstuttu en öflugu námskeiði í skapandi skrifum, en hann er meðal eftirsóttustu kennara á því sviði hér á landi.

Á námskeiðinu ætlar Þorvaldur að vinda ofan af amk. hluta þeirra ranghugmynda sem skólakerfið elur á varðandi skapandi skrif og kynnir til sögunnar einföld en notadrjúg verkfæri fyrir þátttakendur að nýta til eigin skráningar og sköpunar.

Þorvaldur minnir á að sagnaandi hvers manns býr yfir mikilvægum lækningamætti og getur umbreytt neikvæðri orku og ótta í uppbyggilegan styrk. Þess vegna skiptir miklu að við skerpum meðvitund okkar um eigin sagnaheim og kynnumst því hve aðgengilegur hann í raun er.

ATHUGIÐ!
Námskeiðið er sniðið jafnt fyrir þá sem telja sig ekki geta skrifað og eins hina sem hafa af því einhverja reynslu.

Skráning: madurlifandi@madurlifandi.is
Simar: 585 8703
Verð: kr.1.500 ,-



Prentvæn útgáfa



Maður lifandi - Borgartúni 24 - Hæðasmára 6 - s: 58 58 700 - fax: 58 88 705 - kt: 660504 2650 - madurlifandi@madurlifandi.is
Höfundarréttur: Maður lifandi ® 2005 © Allur réttur áskilinn